Opni Golfdagurinn 17.maí

Fimmtudaginn 17.maí kl 13.00

Golfklúbbur Suðurnesja býður öllum áhugasömum um golf að koma á Hólmsvöll í Leiru og kynnast golfíþróttinni. Golfkennari GS ásamt klúbbfélögum verða á staðnum, leiðbeina fólki og kynna golfíþróttina. Farið verður yfir alla þætti golfíþróttarinnar og starf klúbbsins kynnt.

Dagskrá Golfdagsins,

Æfingasvæði – Leiðbeinendur sýna réttu handtökin.

Golfvöllur – Farið verður út á golfvöll og nokkrar holur spilaðar, umgegni um völlinn kynnt.

Klúbbhús – Starf Golfklúbbs Suðurnesja kynnt, kaffi og vöflur í boði

PúttgrínUndirstöðuatriði í púttum og vippum kynnt.

Púttkeppni og Vippkeppni með flottum vinningum fyrir gesti.

Vöfflur og kaffi í boði fyrir gesti og gangandi.

Hvetjum félagsmenn GS um að taka vini með sér.

 


Flokkur: Fréttir

Barnanámskeið í sumar fyrir 7-12 ára

BARNAGOLF

Golfklúbbur Suðurnesja heldur barnanámskeið í golfi fyrir börn á aldrinum 7 – 12 ára.

Staðsetning:

Hólmsvöllur Leiru, mæting er í golfskálann.

Markmið:

Að börnin læri undirstöðuatriðin í golfi í gengum æfingar- og leiki. Golf- og siðareglur er varðar framkomu og umgengi á golfvelli. Á föstudögum eru spiladagar á Jóelnum (litli völlur GS). Um leið og barn lýkur námskeiði er það velkomið á alla spiladaga sumarsins.

Námskeiðin:

  1. vika  11. – 15. júní
  2. vika  18. – 22. júní
  3. vika  25. – 29. júní
  4. vika  02. – 06. júlí
  5. vika  09. – 13. júlí
  6. vika  16. – 20. júlí
  7. vika  23. – 27. júlí

Tímabil:

Hægt er að velja að vera fyrir hádegi kl.9.00-12.00 eða eftir hádegi kl.13.00-16.00

Skráning:

Nánari upplýsingar og skráning er á erlagolf@gmail.com eða í síma 899-2955

Gjald:

Námskeiðsgjald er kr. 9000 innifalið í gjaldinu er sumarkort á Jóelinn.

Yfirummsjón:

Erla Þorsteinsdóttir PGA kennari

Karen Guðnadóttir leiðbeinandi

Flokkur: Fréttir

Vinakeppni GS – GSG

 

ATH:  Leiru eldri -kylfingar GS. Vinakeppni/boðsmót verður haldin/haldið mánudaginn n.k. 21. maí 2012. Golfklúbbur Suðurnesja vs Golfklúbbur Sandgerðis. Allir GS-ingar 50 ára/eldri velkomnir. Ræst verður út á milli 16.00-18.00. Boðið verður upp á súpu og brauð fyrir leik. Langtímaveðurspá er góð. Mætum sem flest og að sjálfssögðu allir með góða skapið.

Flokkur: Fréttir

Þ-móti nr 2 frestað

Ákveðið hefur verið að fresta Þ-mótinu sem fara átti fram á morgun um eina viku. Ástæða frestunarinnar er frost.

Flokkur: Fréttir

Ókeypis byrjendakennsla GS öll mánudagskvöld

Félagsmenn í Golfklúbbi Suðurnesja (karlar og konur með förgjöf 28-36)  fá frían aðgang að golfkennara öll mánudagskvöld frá 20:00 – 21:00.Þar sem golfkennari GS, Erla Þorsteinsdóttir mun kynna byrjendum GS helstu grunnatriði íþróttarinnar.

 Dagskrá byrjendakennslunar;

 

14.Maí                     Almenn kennsla í æfingaskýli GS

21.maí                     Almenn kennsla í æfingaskýli GS

28.maí                     Farið verður yfir púttin.

4.júní                       Farið verður yfir vippin, glompur.

11.júní                     Vipp og pútt kennsla

18.júní                     Farið verður yfir helstu golf- og siðareglur.

25.júní                     Almenn kennsla í æfingaskýli GS.

2.júlí                        Spil kennsla. Farið verður út á völl og spilað nokkrar holur.

9.júlí                        Æfingasvæðið, farið verður yfir sveifluna.

16.júlí                      Spilkennsla, farið verður út á völl.

 

 

Skráning í golfverslun GS, eða í síma 421-4100

 

Flokkur: Fréttir